UPPLOGIN SKULD

Ísland hefur orðið fyrir árás, í einni árásarlotunni sem kennd er við ICEsave, er þjóðin krafin um 100 milljónir í vexti á dag.  Þessi orð skrifar Ómar Geirsson:
http://omargeirsson.blog.is/blog/omargeirsson/entry/990042/

Ómar endurtekur þar orð Júlíusar Björnssonar um eðli efnahagsárása á lönd.  Og ég hef sett upp megininntak þessara orða Júlíusar í spássíunni til hægri á síðunni.  

100 milljónir alla daga skulum við borga fyrir upplogna skuld.  Lygaskuld sem við skuldum ekki.  Þór Saari Alþingismaður og hagfræðingur heldur því fram að það muni taka skatttekjur yfir 79 þúsund okkar Íslendinga af 150 þúsund skattbærum mönnum árlega bara til að borga okurvexti af upplognu skuldinni sem Lepparnir ætla að rukka okkur um í sköttunum okkar.  Halló, það eru tekjuskattar yfir 50% skattbærra manna landsins.  Og allt í vasa útlendinga sem heimta að við borgum skuldir óreiðumanna af því þeir voru víst líka íslenskir eða þannig og af því gungurnar sem stýra landinu vilja ekki verja okkur.   Þó veit ég ekki með Björgólf Thor Londonbúa . . . . . en það er víst nýtt í Evrópu að íslenska ríkið og íslenska þjóðin ábyrgist skuldir allra óreiðumanna sem hafa stigið fæti í Keflavík.    

Við megum eyða kannski næstu öldinni í að borga platskuld sem við skuldum ekki upp á kannski langt yfir 1000 milljarða (1000 000 000 000).   Ekki 1000 milljórnir (1000 000 000) eins og ég held að ofbeldisfylkingin haldi.   En þeir vita ekki hvað þeir gjöra.  Og guð einn veit hvort við getum nokkuð borgað 1 eyri í höfuðstólnum fyrr en eftir kannski 90 - 100 ár.   En þangað til munum við alltaf verða að borga okurvextina segja þrælahaldararnir.   Og við vitum ekki einu sinni hvað lygaskuldin er há!  Halló, veit fólk ekki vanalega hvað það skuldar???   Ekki ef það býr á Íslandi, eða hvað???  Kannski erum við að verða efnahagsnýlenda Breta og Hollendinga eins og Árni Johnsen heldur???   

Við megum ekki hlíta dómi segja þrælahaldararnir.  Við megum hins vegar kannski af þeirra náð ræða við þá seinna um dóminn sem við vinnum.  Og Leppstjórninni finnst það höfðinglega gert fyrir okkur aumingjana sem erum ábyrg fyrir öllum skuldum óreiðumanna af íslenskum toga.  Og líka útlendinga sem lentu í Keflavík.  Hverjum var mútað???   Hótað lífláti???   Það er það sem ég vil vita. 

 

 Ekkert Ice-save.

 http://indefence.is/

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Elle, hef misst af þessum pistli þínum þegar ég kíkti á bloggið þitt í gær.

Og ég myndi vísa í hann á mínu bloggi, ef þú værir ekki að vísa í mig, svona pistill þarf að fara víðar. 

En það er ICEsave þreyta, ég held að fólk trúi því að þetta sé martröð sem taki enda, ef allir gleyma henni, og einn góðan veðurdag verði hún horfin.  Og það er vonandi að svo verði.

Annars þarf bara að halda áfram að kalla "Halló", en öflug stjórnarandstaða mun tengja ICEsave við fyrirhugaðan niðurskurð, því ef þetta er vont núna, og á eftir að versna þegar jafnvægi á að nást eftir 2 ár, hvernig verður þetta þá ef ICEsave bætist ofan á?????

Það þarf mikla Evróputrú til að réttlæta þennan bretaskatt, og síðast þegar ég vissi, þá höfðu VG liðar ekki þá trú.  Og svo er það stóriðjudraumur atvinnulífsins, þar verður VG líka stillt upp við vegg.

Tryggðin við ráðherradraum Steingríms má vera mikil ef hann nær að halda flokknum saman um þessi ósköp öll, þá á ég við svikin við grunnstefnu VG.

En við sjáum til hvernig fer.

Bið að heilsa suður, 

Ómar.

Ómar Geirsson, 10.12.2009 kl. 20:56

2 Smámynd: Elle_

Já, blessaður Ómar.  Nei, þú gast ekki vitað um pistilinn af því hann var failinn. -_- Og það er af því ég var óviss um hvort ég ætti að láta hann skyggja á síðasta pistilinn um efnahagsárásina núna eða seinna.   Steldu öllum pistlum sem þú vilt, Ómar.  En þeir mega ekki skyggja á þína pistla og fólk þarf að geta lesið þá fyrst. 

Nei, það er engin leið lengur að skilja VG og ekkir nokkur afsökun fyrir fullorðið fólk að þeim hafi verið stillt upp við vegg ef þeim var ekki hótað lífláti.   Eina finnanlega skýringin er að þau ætli að halda vinstri stjórn fyrir sig sjálf og sætti sig þ.a.l. við að Ofbeldisflokkurinn stilli þeim upp við vegg.  Ellegar hafi verið mútað.  Og hvað sem þarf að níðast mikið á alþýðu og skemma landið þeirra fyrir vikið.   Óvinir alþýðu eins og Guðmundur Jónas segir og ósvífnin er óendanleg.

Lilja Mósesdóttir og Ögmundur Jónasson gátu staðið gegn erfiðu flokksveðri og það geta hin líka ef mannvonskan drepur þau ekki fyrst.  Hafði að vísu ætlað að reisa minnisvarða um Ögmund ef hann segði nei og nú hefur hann gert það.  Og sjáum hvað hann gerir núna næst.   Hvað með Þráin Bertelsson sem kallaði Icesave kúgun gegn okkur af völdum AGS, Breta og Hollendinga 5/10/09???:


http://www.althingi.is/altext/raeda/138/rad20091005T205749.html

http://www.althingi.is/altext/hlusta.php?raeda=rad20091005T205749&horfa=1

Elle_, 10.12.2009 kl. 23:20

3 Smámynd: Elle_

Og Ómar, ég held það fari að lokast á pistilinn núna um miðnætti, ég setti bara 2 daga á hann.  Get þó opnað hann aftur ef þú þarft að skrifa.

Elle_, 10.12.2009 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband