Færsluflokkur: Sveitarstjórnarkosningar

OLNBOGABÖRN.

 Jerusalem

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jerusalem.  

Er það í alvöru fáfræði okkar hinna?  Kallast það fáfræði að vilja ekki sætta sig við biblíurök fyrir kúgun manna?  Jú, þarna úti eru menn sem heimta að guð hafi valið vissan flokk manna og verja svo flokkinn í endalausu landnámi og ofbeldi í annarra manna landi.  5 milljónir manna á pínulitlu innmúruðu svæði eiga bara að sætta sig við það og þegja á meðan erlendur her ráðskast með land þeirra og líf.  Eðlilega berjast þeir á móti. 
Og með miklu fátæklegri vopnum en drottnunarveldið.  Með þessu er ekki verið að segja að Palestínumenn hafi ekki gert neitt rangt. 

Hvað ætli 7 ára palestínska drengnum finnist?  Drengnum sem hrottaher hinna guðs
´útvöldu´ lamdi í höfuðið og kastaði í jörðina?  Og meðan hann lá þar og heyrði og horfði á, drap her hinna ´útvöldu´ báða foreldra hans með köldu blóði fyrir framan hann. 

Manni ofbýður af að lesa hvað nokkrir menn ganga langt í að verja glæpi Ísrael gegn Palestínu með vísan í biblíu og guðs orð.  Og tala næst sjálfir um lýðræði og mannréttindi.  Mannréttindi fyrir hvaða hóp manna?  Skítt með Palestínumenn, hinir ´útvöldu´ vilja landið þeirra.  Svona langsóttur og ójarðbundinn málflutningur er stórhættulegur.

Palestínskum börnum er alveg sama hvað guðinn ykkar segir, þau vilja foreldra sína bara á lífi.  Nákvæmlega eins og ykkar börn vilja ykkur á lífi.  Engin önnur lög gilda fyrir palestínsk
börn en um Jónsbörn og Karlsdætur og Vilhjálmssyni.  Og persónulega kemur mér heldur ekkert við hvað guðinn ykkar vill fyrir hina ´útvöldu´.  Fjöldi óbreyttra Ísraelsmanna styður Palestínumenn gegn eigin stjórnvöldum.  Kannski það segi sitt um ranglæti Ísraelsstjórnar.  

Her og stjórnvöld hinna guðs ´útvöldu´ á að draga fyrir alþjóðadómstól fyrir glæpi gegn mannkyni og reka burtu úr landi Palestínu.  Með valdi ef þarf.  Verið er að búa til æfareiða menn sem hafa engan tilgang í lífinu nema kannski hefna fyrir missi foreldra sinna og systkina. 

Í AlJazeera fréttastöðinni horfði ég á fullorðinn mann, eldri mann,
gráti nær þegar hann lýsti yfirgangi Ísrael gegn heimalandi hans, Palestínu, og þeim 5 milljónum manna sem búa þar núna við ekkert nema vesöld og volæði.  Hann hafði flúið til Englands.

Í Bandaríkjunum hitti ég oft gamlan og geðugan mann frá Palestínu.  Hann hafði flúið til Bandaríkjanna eftir að landinu hans var stolið af honum og fjölskyldu hans.  Meðan hann lýsti þessu var hann líka gráti nær.  Og hokinn og sorgmæddur.  Hann sagði: I am from the holy land, from Jerusalem.  From Palestine.  It was Palestine.  Now they call it Israel.  
Mikið vorkenndi ég þessum gamla manni.

 

 

 

PALESTÍNU-YFIRTAKAN

1947 UN Partition of Palestine

Map of UN Partition of Palestine - 55% for a Jewish state; 45% for a Palestinian state
Plan of Partition
source: UN

In 1947, the United Nations partitioned Historic Palestine, giving 55% to the Jewish population and 45% to the Palestinian population. The indigenous Palestinians rejected the division of the land on which they had lived and farmed for centuries.

At the time of partition, the Jewish population owned less than 6% of Palestine.

 

1948 Israel, West Bank, and Gaza Strip

Map of Israel, the West Bank, and Gaza following the 1948 war.
Israel, West Bank, and Gaza
source: Palestine Center

In 1948, Israel declared its “independence” on 78% of Palestine.


1967 and Occupation

Map showing that in 1967 Israel occupied the final 22% of historic Palestine as well as a huge chunk of Egypt (known as the Sinai) and the Golan Heights in Syria.
Arab Land Occupied in 1967
source: PASSIA

In 1967, Israel occupied the remaining 22% of historic Palestine: the West Bank and Gaza (as well as large sections of Syria and Egypt). Since then Israel has transferred many of its citizens to Jewish “settlements,” (colonies, which are illegal according to the fourth Geneva Convention). Today 40% of the West Bank is off-limits to Palestinians, as they are not allowed to live in Israeli settlements, drive on Israeli-only roads connecting these settlements, or even live or travel through “security zones,” surrounding the settlements.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.