Færsluflokkur: Útvarp

FELLUM ICESAVE. STEFNUM ICESAVE-STJÓRNINNI.

Engin rök af viti hafa komið fram fyrir ICESAVE ólögunum.  Engin ríkisábyrgð er á ICESAVE og má ekki vera samkvæmt lögum og stjórnarskrá.  Heill hópur erlendra og innlendra lögmanna hefur fært rök gegn ríkisábyrgð.  En ICESAVE-STJÓRNIN er ekki í neinum erfiðleikum með að brjóta lög og stjórnarskrá gegn okkur og vaða yfir Hæstarétt svo gróflega að hlýtur að falla undir valdarán miðað við lög um þrískiptingu valdsins. 

ICESAVE málið allt er eitt ljótt og risastórt kúgunarmál og mun aldrei liðast að alþingi eða stærri hluti þjóðarinnar geti kosið lögbrot yfir minnihlutann.  Stjórnarskráin ver okkur gegn slíku ofbeldi og ranglæti nema þegar stjórnmálamenn brjóta hana.  Og það fara sumir þeirra létt með og hafa líka óskiljanlega komist upp með.  Nú er mál að linni.  Hvar er ríkissaksóknari??

ICESAVE-JÁMENN hafa í alvöru ekki sterkari rökstuðning en að kúgunin ICESAVE 3 sé skárri en
kúgunin ICESAVE 2 og að forysta flokksins þeirra, Samfó, Sjálfstæðisflokks og VG, vilji að þau segi já og að við ættum að halda friði við meint vinaríki sem kúga okkur eins og við værum nýlenda þeirra.  Og loks lygin sem var notuð í ICESAVE 1 og 2 um að landið sykki í sæ ef við sættum okkur ekki við nauðungina.  En þetta eru engin rök.  Við sukkum ekki og munum ekkert sökkva nema við tökum á okkur ICESAVE: Lögsagan í málinu mun verða færð til Englands og það verður notað.   

Nokkrir Sjálfstæðismenn sem voru harðir á móti ríkisábyrgð á ICESAVE hafa nú snúist af því foringinn vill að þeir samþykki nauðungina yfir okkur á gaddfrosnum og gruggugum  forsendum.  Og þið vitið hvað varð af Steingrími stjórnarandstæðingi sem var grjótharður gegn bæði AGS og ICESAVE en fór gjörsamlega á hvolf við valdatökuna í apríl, 09.  Forysta flokkanna 3ja veður villu vegar og vill kannski ekki rannsókn á sakamálinu ICESAVE eða vill kannski bara halda valdastólum.  Það er EKKI næg ástæða til að börnin okkar ábyrgist glæpaskuldir. 

Það verður að skoðast sem ansi grunsamlegt að stjórnmálamenn geti ekki og vilji ekki verja okkur gegn erlendum ólöglegum og rakalausum kröfum um ríkisábyrgð eins og stjórnvöld venjulegra landa myndu vissulega gera.  Þegar lögin segja EKKI RÍKISÁBYRGÐ og stjórnarskráin segir EKKI RÍKISÁBYRGÐ verður það að þýða EKKI RÍKISÁBYRGÐ.



From the EEA/EU directive 94/19/EC,

"Whereas this Directive may not result in the Member States' or their competent authorities' being made liable in respect of depositors if they have ensured that one or more schemes guaranteeing deposits or credit institutions themselves and ensuring the compensation or protection of depositors under the conditions prescribed in this Directive have been introduced and officially recognized."



77. gr. íslensku STJÓRNARSKRÁRINNAR:

Skattamálum skal skipað með lögum. Ekki má fela stjórnvöldum ákvörðun um hvort leggja skuli á skatt, breyta honum eða afnema hann. Enginn skattur verður lagður á nema heimild hafi verið fyrir honum í lögum þegar þau atvik urðu sem ráða skattskyldu.  

FELLUM ICESAVE.  STEFNUM ICESAVE-STJÓRNINNI.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband