Færsluflokkur: Fjármál

HVÍ FÆR BJÖRGÓLFUR THOR AÐ VAÐA UM LANDIÐ?

ICESAVE RAT

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

MOUSE OR RAT? 

 

ICESAVE RAT1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hví ættu menn eins og Björgólfur Thor, búandi í öðru landi í langan tíma að fá að reka banka, gagnaver og lyfjafyrirtæki, etc, í landinu?  Og þó þeir hafi ekki formlega gefið upp ríkisborgararéttinn?  Ættu ekki að vera lagaleg mörk fyrir fjárfestingaleyfi brottfluttra manna í landinu?

Maðurinn býr í Bretlandi, nánar tiltekið í London, Englandi.  Og borgar skatta þar.  Fyrir 3 árum var hann 29. ríkasti maður Bretlands.  Samt notfærir hann sér að hann er enn tæknilega ríkisborgari Íslands.  Og kemst upp með það.

Hann fær að valsa um eins og hann eigi landið.  Og okra með háu lyfjaverði á gamalmennum og sjúklingum.  Hann fær að vaða um í bönkum og grafa undan stoðunum.

 

Hann, langstærsti eigandi ICESAVE hrollvekjubankans, býr í kúgunarlandi okkar í ICESAVE-málinu.  Já, af öllum löndum.  Hví fær hann annars að búa þar verandi íslenskur ríkisborgari??  Vegna EES-samningsins?

Svipað verður sagt um nokkra aðra refi sem óðu um allt á skítugum skóm og tæmdu banka að innan á kostnað landsmanna.  Ýmist beint eða óbeint í gegnum ehf flækjur og millifærslur.  Stjórnmálamenn sem vit hafa ættu að breyta holóttum lögum um bankaeftirlit, fjárfestingar og ríkisborgararétt.

 

 

Fáfróðir og gerspilltir pólitíkusar stofnuðu ríkinu í stórhættu vegna einkabankans hans á meðan almenningur barðist gegn kúgun og niðurlægingu og gjaldþroti ríkisins.  Gegn eigin stjórnvöldum sem unnu með evrópskum nýlenduveldum gegn forsetanum og lýðveldinu.  Loks varð almenningur að þola andstyggilegar kosningar sem hefðu aldrei átt að vera haldnar í fyrstunni.  Ekki ef í landinu hefði verið alvöru ríkisstjórn.

Við eigum líka að segja upp EES-samningnum.  Hann gefur Evrópuvinum lögleysuflokka eins og flokki Jóhönnu og sænskum skúffuvinum of mikil tækifæri til að ráðskast með arð landsins og miðanna.  Og að fara með hann beint úr landi.  Samningurinn hefur stórskaðað okkur á ýmsa vegu.  Ekki síst í bankamálum eins og ICESAVE.

ICELANDIC TYCOON STILL LIVING THE HIGH LIFE IN LONDON AFTER THE COLLAPSE OF ICESAVE.

 

MIKILL STUÐNINGUR VIÐ HÓPMÁLSÓKN GEGN BJÖRGÓLFI THOR.

VILL FÁ FYRRVERANDI HLUTHAFA MEÐ Í HÓPMÁLSÓKN GEGN BJÖRGÓLFI THOR.


99 PRÓSENTIN TAKA TIL SINNA RÁÐA.

99%

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nú er fólk út um allan heim búið að missa þolinmæðina gegn ofbeldi stjórnmálamanna gegn almenningi og yfirráðum 1 prósentsins, peningamanna heimsins yfir nánast öllu.  Og farið að mótmæla á götum úti.

Líka á Íslandi, en á Lækjartorgi var haldinn samstöðufundur með sömu mótmælum og fóru fram víða um heim samtímis.  1 prósentið ræður yfir afkomu og lífi fólks í gegnum spillta stjórnmálamenn sem bankar og fjárfestar og vogunarsjóðir hafa í vasanum. 

Nú þýðir það ekki að allir fjársterkir menn séu hluti af eyðingaröflunum eða ´vondir menn´, munum það allavega, en nógu stór hluti veldur eyðingu og spillingu lífs eins og við þekktum það.  Við getum ekki sætt okkur við það og ætlum ekki að sætta okkur við það.

Occupy movement goes global, turns violent

Occupy Wall Street Protest Brings Crowd to Times Square

Occupy Wall Street protests continue worldwide

Occupy Wall Street protests stepped up around the world‎  ‎‎

Occupy Wall Street Goes Global

'Occupy Wall St.' protest goes global

Occupy Wall Street Goes Global In Over 82 Countries

Occupy the World: The '99 Percent' Movement Goes Global

'Occupy Wall Street' Goes Global


99%Occupy Wall Street Goes Global

 

 

 

 

 

Og NEI, við ætlum ekki að ´lenda ICESAVE´.  ICESAVE hefur verið lent.  Þið sem viljið borga kúgunina gerið það og haldið okkur hinum utan við það.

 


FÆRA LÖGSÖGU OKKAR TIL ÓVINARINS. HVÍLÍKUR FÁRÁNLEIKI.

Getur ríkisstjórnin fært lögsögu okkar í einu stærsta hagsmunamáli okkar undir lög erlends ríkis eins og ætlunin er með ICESAVE 3?  Nánar, undir ensk lög eins og segir í kúgunarsamningnum.  Og hvað haldið þið nú að það muni þýða fyrir hin ætluðu vinaríki??  Við vitum að það var ekki út af engu sem þeir vildu lögsöguna færða, heldur verður það notað.

Hafa engir lögmenn kært framgöngu ríkisstjórnarinnar í ICESAVE málinu?  Hvað á það að líðast lengi að alþingi og stjórnmálamenn brjóti lög og stjórnarskrá gegn borgurum landsins í eigin þágu og í þágu peningaafla, erlendra sem innlendra, og vegna þrýstings þeirra og vinnumanna þeirra á stjórnmálamenn um að almúginn borgi glæpaskuldir þeirra? 

Hvernig á jörðinni komst núverandi ríkisstjórn, ICESAVE-STJÓRNIN, svona langt með lögbrot, mannréttindabrot og stjórnarskrárbrot gegn okkur?  Hví hefur vitleysan ekki verið stoppuð af dóms- og lögregluyfirvöldum?  Ríkisábyrgð verður alls ekki til þó okkur sé hótað.  Verða ekki yfirvöld að stoppa firrta menn sem geta ekki staðið í lappirnar gegn kúgun og spillingu og ætla að fara heill landsins að voða? 

 

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband