HVÍ FÆR BJÖRGÓLFUR THOR AÐ VAÐA UM LANDIÐ?

ICESAVE RAT

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

MOUSE OR RAT? 

 

ICESAVE RAT1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hví ættu menn eins og Björgólfur Thor, búandi í öðru landi í langan tíma að fá að reka banka, gagnaver og lyfjafyrirtæki, etc, í landinu?  Og þó þeir hafi ekki formlega gefið upp ríkisborgararéttinn?  Ættu ekki að vera lagaleg mörk fyrir fjárfestingaleyfi brottfluttra manna í landinu?

Maðurinn býr í Bretlandi, nánar tiltekið í London, Englandi.  Og borgar skatta þar.  Fyrir 3 árum var hann 29. ríkasti maður Bretlands.  Samt notfærir hann sér að hann er enn tæknilega ríkisborgari Íslands.  Og kemst upp með það.

Hann fær að valsa um eins og hann eigi landið.  Og okra með háu lyfjaverði á gamalmennum og sjúklingum.  Hann fær að vaða um í bönkum og grafa undan stoðunum.

 

Hann, langstærsti eigandi ICESAVE hrollvekjubankans, býr í kúgunarlandi okkar í ICESAVE-málinu.  Já, af öllum löndum.  Hví fær hann annars að búa þar verandi íslenskur ríkisborgari??  Vegna EES-samningsins?

Svipað verður sagt um nokkra aðra refi sem óðu um allt á skítugum skóm og tæmdu banka að innan á kostnað landsmanna.  Ýmist beint eða óbeint í gegnum ehf flækjur og millifærslur.  Stjórnmálamenn sem vit hafa ættu að breyta holóttum lögum um bankaeftirlit, fjárfestingar og ríkisborgararétt.

 

 

Fáfróðir og gerspilltir pólitíkusar stofnuðu ríkinu í stórhættu vegna einkabankans hans á meðan almenningur barðist gegn kúgun og niðurlægingu og gjaldþroti ríkisins.  Gegn eigin stjórnvöldum sem unnu með evrópskum nýlenduveldum gegn forsetanum og lýðveldinu.  Loks varð almenningur að þola andstyggilegar kosningar sem hefðu aldrei átt að vera haldnar í fyrstunni.  Ekki ef í landinu hefði verið alvöru ríkisstjórn.

Við eigum líka að segja upp EES-samningnum.  Hann gefur Evrópuvinum lögleysuflokka eins og flokki Jóhönnu og sænskum skúffuvinum of mikil tækifæri til að ráðskast með arð landsins og miðanna.  Og að fara með hann beint úr landi.  Samningurinn hefur stórskaðað okkur á ýmsa vegu.  Ekki síst í bankamálum eins og ICESAVE.

ICELANDIC TYCOON STILL LIVING THE HIGH LIFE IN LONDON AFTER THE COLLAPSE OF ICESAVE.

 

MIKILL STUÐNINGUR VIÐ HÓPMÁLSÓKN GEGN BJÖRGÓLFI THOR.

VILL FÁ FYRRVERANDI HLUTHAFA MEÐ Í HÓPMÁLSÓKN GEGN BJÖRGÓLFI THOR.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

   Góður pistill Elle,við spyrjum hvers vegna?  og þá!!! Eru öll gen stjórnmálamanna komin frá Ragnari Reykás mikil er viðkoma hans.Kveðja.

Helga Kristjánsdóttir, 8.12.2011 kl. 01:52

2 Smámynd: Elle_

E.S.: Ég ætla að taka það fram að ég skil að sumt fólk er 2-faldir eða 3-faldir ríkisborgarar, það getur gerst.  Hinsvegar veit ég ekki með hann, hvort hann er ríkisborgari beggja landa.  Og takk, Helga. 

Elle_, 8.12.2011 kl. 19:17

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Stórgóður pistil hjá þér Elle!!

Óskar Arnórsson, 11.12.2011 kl. 22:57

4 Smámynd: Elle_

Gott að vita að ykkur finnst það, Óskar.  Reiðin hefur verið að byggjast upp gegn þessum andskotum sem hafa verið í einni sæng alltof lengi með nokkrum stjórnmálamönnum og helst Jóhönnuflokknum og komist upp með morð nánast. 

Hurðar eru opnaðar og dregnir út rauðir dreglar fyrir þessum rottum og þeim hjálpað að blóðsjúga almenning með gjöfum af arði landsins eins og ókeypis bönkum og jörðum landsins og fyrirtæjum. 

Og það er ekki nóg, heldur fá þeir að misnota ókeypis gjafirnar án eftirlits nánast og í friðhelgi. 

Og ganga enn ekki bara lausir.  Nei, heldur ganga enn um með ótrúlegum rottugangi og fá hjálp frá heimskum samfylkingarstjórnmálamönnum við að setja upp gagnaver og halda okurlyfjafyrirtækjum. 

Ógeðslegt og verður að stoppa. 

Elle_, 11.12.2011 kl. 23:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband