LAGASKRIFSTOFA ALÞINGIS

VIGDÍS HAUKSDÓTTIR: UM

LAGASKRIFSTOFU ALÞINGIS

http://www.althingi.is/myndir/mynd/thingmenn/706/org/mynd.jpg

Vigdís Hauksdóttir skrifaði í Morgunblaðið fyrir 2 dögum og í Fréttablaðið í dag, um nýtt lagafrumvarp hennar um lagaskrifstofu fyrir Alþingi.  Vigdís segir:


Yfirgnæfandi meiri hluti lagafrumvarpa sem samþykkt eru á Alþingi koma frá framkvæmdavaldinu en hér á landi er hvorki starfandi lagaskrifstofa hjá Stjórnarráði Íslands né starfandi lagaráð hjá Alþingi sjálfu.  Ég hef af þessum ástæðum lagt fyrir Alþingi lagafrumvarp um að stofnuð verði lagaskrifstofa Alþingis til að bæta lagasetningu. Markmiðið frumvarpsins er að ekki komi frumvörp né þingsályktunartillögur fyrir Alþingi sem innihalda lagatæknilega ágalla eða samrýmast ekki stjórnarskránni, að létta álagi af dómstólum landsins og umboðsmanni Alþingis:
 


E.S: Ætla að bæta við að Vigdís Hauksdóttir er sá Alþingismaður, sem barist hefur einna harðast allra stjórnmálamanna gegn Icesave-nauðunginni, sem núverandi ríkisstjórn og stjórnarflokkar hafa ætlað með ofbeldi að koma yfir okkur. Vigdís skrifaði líka fyrir 1/2 ári:

Efir að ég tók sæti á Alþingi hef ég undrast þau vinnubrögð sem þar eru viðhöfð. Ber þar hæst ofríki framkvæmdavaldsins. Hálf óhugnanlegt er hversu sterk tök framkvæmdavaldið hefur á löggjafavaldinu. Kristallast þetta í dagskrá þingsins undir forystu forseta sem er hluti af framkvæmdavaldinu - enda komast mál ekki á dagskrá þingsins nema með blessun ríkisstjórnarflokkana:

 ER LÖGGJAFINN Í HÆTTU?


 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband