NIÐURSTAÐA OKKAR ER SKÝR, STEINGRÍMUR.

Nú fyrir skömmu á þessum drungalega og skýjaða degi kusu ótrúlega 44 alþingismenn ICESAVE nauðungina yfir æsku landsins í 3ja sinn og gerðu daginn kolsvartan og niðurlægjandi fyrir foreldra þeirra: SKÝR NIÐURSTAÐA.  Líka fyrir gamalmenni sem hafa miklar áhyggjur af afkomu og velferð afkomenda sinna.  Og alþingi bætti ofan á skömmina og felldi 2 tillögur um að málið færi í dóm þjóðarinnar.  Maður er næstum orðlaus yfir endalausri ósvífni helferðarstjórnarinnar.  

Steingrímur heldur fram að niðurstaða alþingismanna og ICESAVE-STJÓRNARINNAR sé skýr.  Eins og við vitum það ekki.  Hefur það farið framhjá nokkrum manni að nánast það eina sem ríkisstjórnin hefur unnið við sl. 2 ár hefur verið að eyða skattpeningum okkar í bankana og vinna að því dag og nótt að gera gamalmenni og æsku landsins að skuldaþrælum evrópskra stórvelda?  Við bjuggumst vel við þessari útkomu um ICESAVE frá ykkur, Steingrímur. 

Nú fari vonandi að sjá fyrir endann á ICESAVE, segirðu Steingrímur.  Já, Steingrímur, en ekki með þeim hætti sem þú vilt.  Nú hafa nefnilega yfir 33700 manns á minna en 5 dögum skrifað undir undirskriftalista þar sem heitið er á forsetann að synja ómennskri kúgun ykkar gegn landsmönnum.  Við erum líka stálheppin að vera með lýðræðissinnaðan og mennskan forseta við völd og erfitt verður að trúa öðru en að sá mæti og vitri maður synji andstjórnarskrárlegri og kolólöglegri niðurstöðu ykkar, ÓLÖGUM YKKAR.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

NEI VIÐ ICESAVE3: Ásmundur Einar Daðason (JÁ VIÐ ICESAVE2), Birgir Ármannsson, Birgitta Jónsdóttir, Birkir Jón Jónsson, Eygló Harðardóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Höskuldur Þórhallsson, Lilja Mósesdóttir, Margrét Tryggvadóttir, Pétur H. Blöndal, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Sigurður Kári Kristjánsson, Unnur Brá Konráðsdóttir, Vigdís Hauksdóttir, Þór Saari.

Ögmundur Jónasson sagði NEI við bæði ICESAVE1 og ICESAVE2.  Nú hefur hann glatast.  

Nú hafa 35011 manns skrifað undir á minna en 5 dögum. 

FORSETINN HLÝTUR AÐ SYNJA: SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON.

VONBRIGÐI: ÞÓR SAARI. 

Elle_, 16.2.2011 kl. 19:28

2 Smámynd: Elle_

Hinir ´lýðræðislegu´ stjórnarflokkar í ´gegnsæju velferðarstjórnni´ felldu líka 2 tillögur um að þrælasamningur þeirra við gömlu evrópsku nýlenduveldin gegn börnunum okkar yrði settur í okkar dóm: Fyrst felldu lýðræðissinnarnir TILLÖGU ÞÓRS SAARI og næst TILLÖGU PÉTURS H. BLÖNDAL.

KJAFTÆÐI BJARNA BEN: EKKERT GLEÐIEFNI.

Og tæpl. 37 þúsund manns skráðir. 

Elle_, 17.2.2011 kl. 00:20

3 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Sorgleg niðurstaða í öllum 3 málum, nú er bara vona að forseti vor standi sig, maður skynjaði það alveg á viðtalinu við hann hjá Agli að það er vegið mikið að honum bak við tjöldin af stjórninni!!

Halldór Björgvin Jóhannsson, 17.2.2011 kl. 21:59

4 Smámynd: Elle_

Já, sorglegt, Dóri.  Hvílíkir lýðræðissinnar sem stjórna landinu.  Forsetinn talaði meðal annars um hótanir og e-s konar yfirgang.  Og hótunarbréf Jóhönnu til hans var nú ansi opinbert eftir að hann synjaði ICESAVE 2 ódæðinu.  Hann sagði líka að ekki væri rétt að leggja það á einn mann að skrifa undir eða synja lögum, man ekki orðalagið hans en upptakan af þættinum er enn þarna. 

Elle_, 17.2.2011 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband