SIGURÐUR LÍNDAL UM HS ORKU OG MAGMA.

SIGURÐUR LÍNDAL LAGAPRÓFESSOR SEGIR KAUP Á HS ORKU ÓLÖGMÆT.
 

Sigurður Líndal lagaprófessor
Sigurður Líndal lagaprófessor.

Lagaprófessor segir að kaup Magma Energy á HS Orku í gegnum sænskt skúffufélag séu ólögmæt. Dótturfélagið sé stofnað til þess eins að fara á svig við lög og ekki sé hægt að túlka félag með enga starfsemi sem lögaðila innan EES. Fulltrúi Vinstri grænna í nefnd um erlenda fjárfestingu segir meirihluta nefndarinnar hafa skort vilja til að skoða kaupin til hlítar.

Eins og frægt er orðið klofnaði nefnd um erlenda fjárfestingu í afstöðu sinni til kaupa kanadíska fyrirtækisins Magma Energy á HS Orku í gegnum skúffufélag í Svíþjóð.

Meirihluti nefndarinnar taldi kaupin samræmast lögum og taldi sænska félagið uppfylla skilyrði um lögaðila, en fyrirtækjum og eða lögaðilum utan EES-svæðisins er óheimilt að fjárfesta í íslenskum orkufyrirtækjum. Lagaprófessor við Háskóla Íslands telur hins vegar að kaupin á HS Orku brjóti í bága við lög um erlenda fjárfestingu.

Hann segir að samkvæmt bókstaf laganna hafi einungis lögaðilar þennan rétt, ekki sé nánar farið út í það. Hann segist telja að með lögaðilum sé átt við raunverulegt starfandi fyrirtæki.

SIGURÐUR LÍNDAL LAGAPRÓFESSOR SEGIR KAUP Á HS ORKU ÓLÖGMÆT.

 

 

Já, hvað segir nú landsöluliðið og Magma verjendur um orð Sigurðar Líndal???  Við verjum auðlindir landsins hvað sem AGS segir.  Og hvað sem Evrópufylkingin, LÍÚ og Sjálfstæðisflokkurinn vilja.  Við verjum auðlindir OKKAR, landið, miðin, fiskinn, orkuna, vatnið, hvað sem gróðapungum líður illa með það.  Við komum stuðningsliði þeirra frá völdum.  Við höldum eigum okkar hjá landsmönnum, ekki hjá EES, ekki Evrópustórríkinu, ekki hjá innlendum eða útlendum gróðafíklum, hvað sem þeir nú ætla að plata okkur um að arðurinn fari til landsmanna. 

Magma platar okkur ekki neitt og arðurinn mun fara beint úr landi.  Líka var alltaf ljóst frá fyrstu innkomu þeirra að þeir ætluðu að komast yfir stærstan hluta HS Orku, þó þeir hafi haldið öðru fram.   Og hví í veröldinni er öllum innan EES leyft að ná auðlindum landins???  Hverjum datt í hug slík ólög og vitleysa??  Nei, við höldum auðlindum landsins Í EIGU OG UNDIR YFIRRÁÐUM íslensku þjóðarinnar.  Segjum upp hinum kúgandi EES samningi og drögum fáráðsumsóknina inn í Evrópuríkið til baka strax.  Og komum hættulegu ICESAVE- OG SKATTASTJÓRN Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar burt núna, fyrir næsta skaða, fyrir veturinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ef þessi kaup yrðu kærð í Svíþjóð yrði strax gert eitthvað í málinu. Enn það kærir engin....

Óskar Arnórsson, 17.7.2010 kl. 22:40

4 Smámynd: Elle_

Já, þú segir nokkuð, Óskar, skrýtið þegar maður hugsar það þannig.  Ætlar enginn að kæra eða verður það bara sama gamla lenska vægnin við lögbrjóta??  Nema auðvitað þeir hafi stolið tyggjópakka eða Vodkapela - þá verður kæru flýtt.   Mikill mannamunur er gerður á ungum strákum og ólánsmönnum annars vegar og útsmognum hvítflibba-stórþjófum hinsvegar.  Og það kallast víst mannréttindi í hinu þróaða vestræna ríki.

Elle_, 17.7.2010 kl. 23:01

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

Sko, eg se ekki ad thetta se neitt mal med ad kaera og rannsaka. Sviar eru glerhardir i svona malum og kaera sig ekkert um ad landid se notad i svona. Thad getur hver sem er sem getur bent a stadreyndir sem lögregla telur sig skyldug ad skoda.

Svium er alveg sama i hvernig fötum raeningi er. Their taka tha samt. Armani jakkaföt i Svithod er odyrari en ullarpeysa a Islandi....  

Óskar Arnórsson, 18.7.2010 kl. 09:13

6 Smámynd: Elle_

Já Óskar, vildi að jakkaföt og ullarpeysa skiptu ekki máli en það bara lítur þannig út.  Finnst verst að ráðist sé að ungum drengjum.  Og okurbúllur JÓNS Á. JÓHANNESSONAR AF ÖLLUM, hafa gerst sekar um að draga unga drengi inn í lokuð pláss og standa ógnandi yfir þeim.  Hákon Jóhannesson skrifaði um það í bloggsíðu sinni í Word Press.  Yfirvöld verða að stoppa slíkar ógnanir gegn ungum krökkum.  En læt þetta hér inn:

MAGMA-RIFTUN FYRST, KAUP Á HS-ORKU SÍÐAR.



Elle_, 19.7.2010 kl. 00:35

7 Smámynd: Elle_

UNDIRSKRIFTASÖFNUN: VERJUM AUÐLINDIR OKKAR: http://orkuaudlindir.is/ 

Elle_, 19.7.2010 kl. 19:30

10 Smámynd: Óskar Arnórsson

Eg trui ekki einu ordi om ad skradir eigendur ad MAGMA seu their rettu...

Óskar Arnórsson, 22.7.2010 kl. 05:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband