EFNAHAGSÁRÁS OG GLÆPUR.

Icelandic President Olafur Ragnar Grimsson announces on January 5, 2010 in ReykjavÌk in a speech televised to the nation that he would not sign a controversial bill to compensate the British and Dutch governments over the failure of Icesave bank, instead
Forseti Íslands synjaði ICESAVE 5. janúar í fyrravetur.
 

Heitið er á forseta Íslands í nýrri undirskriftasöfnun gegn ICESAVE.  Heitið er á hann að synja undirskrift á ólögunum sem eru væntanleg frá alþingi á næstunni.  Tæplega 5 þúsund manns hafa nú þegar skráð sig:
SAMSTAÐA ÞJÓÐAR GEGN ICESAVE.  Það eru um 3 menn á hverri mínútu að meðaltali og með sama áframhaldi verðum við orðin 50 þúsund á 11,5 dögum.

ICESAVE glæpurinn er mesta niðurlæging og versta efnahagsárás og kúgun gegn okkur og börnum okkar fyrr og síðar.  Og fullkomlega óþolandi að alþingismenn og ríkisstjórnin skuli ætla að pína stórhættulega nauðung yfir landsmenn með öllum ráðum.  

Í fyrravetur kolfelldum við nauðungina í þjóðaratkvæðagreiðslu.  Hinsvegar dugði það ekki.  Ótrúlega fór fjármálaráðherra landsins langt úr vegi sínum á fund Breta og Hollendinga til að fá nú að semja um að kúgunin gegn okkur yrði örugglega endurtekin.  Hann fagnaði fundunum opinberlega.  Stjórnmálamenn vilja málið ekki í dóm fólksins og hafa enn ekki lært að það er alþýða landsins sem fer með fullveldið, ekki stjórnmálamenn.

Í 3ja sinn hefur núverandi ríkisstjórn, ICESAVE-STJÓRNIN, farið gegn vilja þjóðarinnar og samið um ólöglega ríkisábyrgð á ICESAVE, skuld einkabanka sem við erum engan veginn ábyrg fyrir og kemur okkur ekki við.  Hafði ríkisstjórnin leyfi til að fara aftur og semja um mál sem við felldum? 

Gegn okkar getu og vilja og gegn lagaákvæðum og stjórnarskrá fer alþingi og núverandi ríkisstjórn endurtekið fram með ósvífna rukkun Evrópuvelda gegn okkur.  Samt hefur enginn dómur fallið í málinu og dómur gegn okkur ólíklegur.  Þar fyrir utan eru sterkar vísbendingar um að ríkið nálgist gjaldþrot og verði gjaldþrota með ríkisábyrgð á ICESAVE.

E.S.: Getur alþingi eða hluti þjóðarinnar kosið lögleysu yfir hinn hlutann eða verður að kæra málið?  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

5 þúsund manns hafa nú skrifað undir.

Elle_, 13.2.2011 kl. 00:50

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæl Elle! Ég var að stympla inn á listann áðan þeir voru orðnir 8000,00+ ehv.  Langt síðan maður hefur hlustað á Þjóðhöfðingja eins og raunverulegan landsföður.

Helga Kristjánsdóttir, 13.2.2011 kl. 18:09

3 Smámynd: Elle_

Helga, ég held forsetinn hafi það vit að hafna kúguninni.  Hann hefur eflt lýðræðið í landinu og það er í hans stíl að synja núna eins og síðast. 

Við segjum NEI og aftur NEI.  

Elle_, 13.2.2011 kl. 22:00

5 Smámynd: Elle_

30909.

Elle_, 16.2.2011 kl. 12:50

6 Smámynd: Elle_

33547.

Elle_, 16.2.2011 kl. 17:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband