Færsluflokkur: Bloggar

GETUR BJARNI BEN EKKI SAGT NEI? EN SIGMUNDUR?

GETUR HANN EKKI SAGT NEI?

Bjarn i Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins.<br /><em>Ernir Eyjólfsson</em>

Bjarni Benediktsson.

Hann vill ekki hafna neinu, hann vill halda þessu opnu, hann vill skoða þetta betur, segir hann.  Skoða hvað, Bjarni Ben???  Meinarðu skoða ólöglega kúgun???  Þú veist vel, eins og við hin, að við skuldum ekki Icesave, höfum aldrei skuldað Icesave og munum aldrei skulda Icesave.  Hvað viltu skoða þá?  Ef þú kannt ekki að segja NEI, þarftu að læra það.  Menn verða að kunna að standa í lappirnar og segja NEI.  Þú hefur ekki leyfi til að vinna með ógnarstjórnum Bretlands, Hollands og Íslands og semja um neitt Icesave.  Það verður alfarið að hafna þessari nauðung.  

Getur það verið lúmska eða undirferli sem dregur þig áfram núna í málinu?  Kannski knýr þig löngun þín og vilji fyrir að koma okkur inn í Evrópu-ríkið???  Kannski viltu ekki styggja Evrópu?  Getur það verið, Bjarni Ben, að þú hafir nú lagst jafn lágt og Jóhanna Sigurðardóttir og Össur Skarphéðinsson?  Eða snýst það um að halda völdum???  Hafnaðu þessu núna strax - ef þú gerir það ekki, mun það verða þitt fall.  Við munum ALDREI borga Icesave.  Við munum koma ykkur burt, burt úr stjórn, burt frá völdum og fella alla ógilda Icesave-nauðungarsamninga sem verða píndir yfir okkur.  Og þið munuð þurfa að svara fyrir voðaverkið. 

 

EN SIGMUNDUR?

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.<br /><em>mbl.is/Kristinn</em> Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Og Sigmundur, það er gott að þú vilt snúa þér að öðrum málum.  Fyrir löngu hefði þurft að hafna þessari ótrúlegu vitleysu.  En þú gast það ekki, þú varst ekki í stjórn.  Um leið og stjórnvöld vissu að okkur bæri engin lagaleg skylda til að borga Icesave, hefðu þau átt að hafna nauðunginni alfarið.  Ekki semja um skuld sem við skuldum ekki og sem við erum krafin um og nánast handrukkuð um, ólöglega og af ótrúlegri ósvífni.  Þetta veistu vel, Sigmundur, og þú barðist manna harðast gegn nauðunginni.  Svo ég furða mig á því að þú skulir tengja fall hollensku stjórnarinnar við það að snúa okkur að öðrum verkum.  Það kemur ekkert falli hollensku stjórnarinnar neitt við að Icesave er fjárkúgun sem verður að hafna.  Icesave kemur okkur bara ekki neitt við.  Við segjum NEI og aftur NEI og 100% NEI.  Hinir eru meðsekir, huglausir eða steinsofandi.  

Vill skoða tilboðið betur



MAÐUR SEMUR EKKI UM FJÁRKÚGUN

MAÐUR SEMUR EKKI UM FJÁRKÚGUN.

http://abbystar.files.wordpress.com/2009/10/blackmail.jpg

 

Nú er Icesave-stjórnin á fullu að semja og semja um hvað???  Jú, semja um fjárkúgun!?  Hvað lætur þau enn halda að þau hafi vald til að semja gegn lögum?!   Lögum, sem þó hafa fyrir löngu verið ítarlega skýrð, -já, skýrð út í ystu æsar af færustu og lærðustu lögmönnum, bæði erlendis og innanlands.  Af fjölda lögmanna og lagaprófessora, eins og Jóni Steinari Gunnlaugssyni og Lárusi L. Blöndal.  Magnúsi Inga Erlingssyni og Ragnari Hall.  Sigurði Líndal, Stefáni Má Stefánssyni og Vigdísi Hauksdóttur.

 

Manni fallast nánast hendur.  Manni verður orða vant.  Ríkisstjórn lands getur tæplega gerst andstyggilegri og vitlausari en semja við fjárkúgara.  Ógnarstjórn semur um fjárkúgun gegn eigin þjóð.  Hvað í veröldinni er það sem þau ekki skilja???  Er þetta ekki nokkuð skýrt?:

Það eru öll rök sem hníga að því að íslenska ríkið eigi ekki að veita ríkisábyrgð á Icesave-skuldbindingum Íslands gagnvart Bretum og Hollendingum. Þegar lög nr. 98/1999 um innistæðutryggingasjóðinn voru samþykkt (lögleiðing á tilskipun 94/19/EB) var sérstaklega tekið fram í frumvarpinu að bankarnir sem þá störfuðu væru ekki lengur ríkisbankar og að innstæðutryggingasjóðurinn skyldi vera sjálfseignarstofnun og ekki ríkisstofnun:

MAGNÚS INGI ERLINGSSON, LÖGFRÆÐINGUR OG SÉRFRÆÐINGUR Í EVRÓPURÉTTI, DES., 09.

LINK VANTAR 


 Eða þetta?:

Sigurður Líndal lagaprófessor segir óskiljanlegt af hverju ekki er búið að leggja það fyrir dómstóla hvort Íslendingar eigi að borga Icesave skuldirnar. Aðalatriðið sé að fá réttarstöðu þjóðarinnar gagnvart Bretum og Hollendingum á hreint áður en skuldirnar verði greiddar.

Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari segir það skyldu íslenskra ráðamanna að látið verði reyna á það fyrir dómstólum hvort þjóðin eigi að greiða skuldir vegna Icesave. Sigurður Líndal lagaprófessor tekur í sama streng og Jón Steinar og segir að sér finnist það óskiljanlegt að ekki skuli hægt að leggja málið fyrir dóm. Að mati Sigurðar hljóta Íslendingar að eiga rétt á því og slíkum dómstóli hlýtur að vera hægt að koma á fót.

Sigurður segist frekar vilja tapa slíku máli þannig að réttarstaðan verði skýr en að vera í óvissu og „láta gagnaðilana einhliða ákvarða skyldur okkar.":
 
JÓN STEINAR GUNNLAUGSSON, HÆSTARÉTTARDÓMARI OG SIGURÐUR LÍNDAL, LAGAPRÓFESSOR, JÚNÍ, 09: 
 
http://www.visir.is/article/20090623/FRETTIR01/167917635


 Ekki er þetta rosalega flókið?:

Hvenær tók íslenzka ríkið að sér að ábyrgjast skuldir Landsbanka Íslands sem var í einkaeign og ríkinu - og þar með íslenzku þjóðinni - óviðkomandi og hvar er staður fyrir slíkri ábyrgð í lögum, samningum eða löglega bindandi yfirlýsingum? Slíkar íþyngjandi skuldbindingar verða að styðjast við skýra réttarheimild:

 SIGURÐUR LÍNDAL, LAGAPRÓFESSOR, OKT., 09: 

 http://visir.is/article/20091013/SKODANIR03/305364061

 

 Eða loks þetta?:

Stefán Már Stefánsson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, er ósáttur við að samið hafi verið um að greiða icesave reikningana. Hann segir ekki lagalegar forsendur fyrir greiðslunni. Hann segir málið klúður af hálfu Evrópusambandsins.  Stefán segist hafa viljað sjá Alþjóðlega dómsstóla skera úr um hvort Íslendingar ættu að ábyrgjast tryggingasjóðinn. Honum finnst ekki sanngjarnt að Íslendingar séu beittir þrýstingi og fái ekki dómsúrlausn um hvort skoðun gagnaðilanna sé rétt. Það gangi ekki í samskiptum ríkja:
 
STEFÁN MÁR STEFÁNSSON, LAGAPRÓFESSOR, JÚNÍ, 09:

 
 
 
 
MAÐUR SEMUR EKKI UM FJÁRKÚGUN. 

OPNIÐ BANKAREIKNING FYRIR KÚGARANA

JÁ, OPNIÐ REIKNING FYRIR KÚGARANA

 

oppression-in-palestine.jpg

 

Afvegaleiddar raddir hafa heyrst alltof lengi í landinu um Icesave.  Mjóar músaraddir og rakalausar raddir sem ljúga upp á okkur og börnin okkar skuld sem við skuldum ekki.  Og ´rökin´ eru af því bara og af því við erum víst íslensk og íslenskir ríkisborgarar.  En hvað með okkur hin sem erum kannski bara 1/2 íslensk í blóðið, kannski líka 1/2 afgönsk eða dönsk???  Þurfum við líka að borga fyrir kúgun?  Og hvað með okkur, sem erum kannski tvöfaldir ríkisborgarar, -kannski líka bandarískir eða færeyskir, ja, eða hollenskir ríkisborgarar?  Þurfum við líka að borga Icesave?

 

Og svo koma ´rökin´ um hvað við vorum sek og vond og eyddum peningum í hryllilegan munað eins og fjölskyldubíl.  Já, venjulegan fólksbíl svo við yrðum ekki að labba langar leiðir með 7 börn í togi ef við dirfðumst að fara í vinnu.  Og svo við yrðum ekki að eyða 5 tímum á dag í að fara fyrst í strætó með börnin í gæslu og skóla.  Strætó sem ekur inn í öll úthverfi bæjarins með okkur, eftir að við erum löngu frosin í hel við að bíða eftir honum.  Og svo stoppar hann ekki einu sinni þar sem við þurfum að fara út.  Og þá tekur við löng ganga með alla litlu krakkana.  Já, og svo keypti Jói Jóns í næstu götu víst einu sinni skjá sem hann þurfti við vinnuna í skúrnum heima af því hann var sjálfstæður verktaki.  Og af því skjárinn var víst flatur, skuldum við hin öll Icesave.  Icesave-skuld Londonbúans Björgólfs Thors ríka, sem Evrópulöndin rukka okkur fyrir af því hann þarf að nota peningana sína í annað, -í merkilegri hluti en borga skuldir.  Leyfðist honum ekki einu sinni að segja í RUV OKKAR eftir fall bankans HANS, að bankarnir hafi farið á hausinn af því við hin sem byggjum þetta land, eyddum peningum í flatskjái???  Eða var það kannski einn hinna?

 

Ja-há, það eru stórmerkileg ´rökin´ fyrir Icesave ´skuldinni okkar´.   Og hvaða heilastöðvar nota þeir menn og þær konur, sem vilja endilega borga fjárkúgun handrukkara???  Geta þau ekki borgað Icesave sjálf og haldið okkur hinum utan við vitleysuna ÞEIRRA?  Já, geta þau ekki bara opnað bankareikning fyrir kúgarana og skrifað undir loforð um að helmingur tekna þeirra muni fara inn í bankann fyrir Icesave?  Icesave kemur okkur hinum ekkert við.  Og ég mæli fastlega með Landsbankanum.  Já, það ættu Icesave-liðarnir og Icesave-sinnarnir að gera.  Vegna þess að við hin erum mennsk og ekki fífl og höfum sjálfsvirðingu.  Og við ætlum ekki að borga neitt Icesave.  Ætlum alveg örugglega ekki að borga neitt Icesave.  ALDREI.  Alveg sama hvað við erum ólöglega sköttuð af Icesave-stjórninni.  Og alveg sama hvað við erum kúguð og pínd af AGS og Evrópu-veldunum.  Nei, og aftur nei.  Við látum ekki fara svona með okkur. 

 

SETTING AN EXAMPLE!!  ICELAND REFUSES TO PAY!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! 

 


HVAÐ ERU INDRIÐI OG STEINGRÍMUR AÐ VERJA???

HVAÐ ERU ÞEIR AÐ VERJA???

Indriði H. Þorláksson og Steingrímur J. Sigfússon.

Nú hefur Indriði H. Þorláksson komið fram og lýst enn einu sinni yfir ábyrgð ísl. ríkisins á Icesave, þó hann viti að ábyrgðin sé lagalega engin.  En siðferðislega víst, að hans mati.  Og hvernig þá, Indriði, og þið hinir sem haldið þessu fram?  Indriði hefur skrifað um meinta ábyrgð okkar fyrir ólöglegri fjárkúgun stórvelda í Evrópu, í opinbera grein í Fréttablað eins stærsta glæframanns landsins, og þó víðar væri leitað.  En þar, eins og í RUV, hafa komið fram endalausir Icesave-liðar og Icesave-sinnar, hver á fætur öðrum allt sl. ár, og nú hampa þeir Indriða fyrir ´rökin´og verja nauðungina sem skyldu okkar landsmanna gagnvart nýlenduveldunum: Jón Kaldal, Sverrir Jakobsson, Þorsteinn Pálsson + + +  Indriði segir að við eigum ekki að ganga um með betlistaf!?   Hvaða betlistaf, Indriði???   Hver er með betlistaf, við almúgi landsins eða þið hinir, Icesave-sinnarnir, og ræningjarnir í Evrópu, sem vinnið að því hörðum höndum saman að ræna okkur skattpeningum 79 þúsund okkar af 150 þúsundum?  Yfir helmingi skattfés landsins?  Og svo kastar hann spjótum i Eva Joly, eins verndar-engils okkar í heiminum, innanlands og utan.  Hvers vegna, Indriði, kastarðu í Eva Joly??? 
 

 Steingrímur J. Sigfússon á Alþingi.

Steingrímur J. Sigfússon hefur komið fram í Morgunblaðinu og kannski viðar, og ver þar Indriða.  Og ekki við öðru að búast af manninum, sem sjálfur hvolfdist eftir valdatökuna í apríl og skiptist yfir í heitan Icesave-sinna úr heitum AGS- og Icesave-fjandmanni.  Enda hefur Steingrímur varið hrikalega glæsilegan og glæstan Svavars-samninginn af miklum eldmóði allar götur síðan Svavar Gestsson nennti þessu ekki lengur:

Glæsileg niðurstaða:

http://www.youtube.com/watch?v=Da88dIQoToU

 

 

Er hegðun og skrif Indriða, Steingríms og Svavars ekki bara sjálfsréttlætingar og sjálfsvarnir sigraðra manna í dauðateygjunum eftir opinberar árásir og skot Jóhönnu Sigurðardóttur og Kristrúnar Heimisdóttur?  Og hversu óheiðarlegt, ómerkilegt og ótrúverðugt sem það er nú af þeim að koma fyrst fram núna með slíka gagnrýni á mennina 3.   Það vekur óneitanlega upp enn alvarlegri spurningar um trúverðugleika og vanhæfni Jóhönnu.  Nógu var það nú slæmt fyrir.  Tími hennar í stjórn enda löngu kominn og farinn.  Og einna mest óþolandi af öllu eru gagnrýnislausar fréttir RUV okkar landsmanna, gegn endalausum rangfærslum Icesave-sinna um meinta ríkisábyrgð á Icesave.

 

 

Verð að bæta við nokkrum linkum sem lýsa nánar en mér tókst, hvernig Indriði ætlar með öllum fölskum ráðum að þröngva upp á okkur ríkisábyrgð.  Indriði lætur eins og minnismiði hinnar fyrri ríkisstjórnar, og samkomulag við handrukkarana í Evrópu, um að gera seinna drög að samningi eftir vissum lögum, sé lögbundinn samningur, þó hann viti bæði að rukkararnir hafi aldrei farið eftir lögunum og löggjafarvaldið okkar hafi heldur aldrei fallist á það sem rukkararnir innheimtuðu. 

Aðstoðarmaður gerir eitt, ráðherra segir annað

Málsvörn Indriða H.

Ósvífni Rúvara í framsetningu fullyrðinga Indriða H. Þorlákssonar eins og um ósvikinn sannleika væri að ræða!


AÐ SNÚA MÖNNUM Á HVOLF - 1. KAFLI

AÐ SNÚA MÖNNUM Á HVOLF

 

 Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir munu funda með aðilum vinnumarkaðarins í Ráðherrabústaðnum í kvöld.<br /><em>mbl.is/Heiddi</em>

 

Hvaða ógnarvald getur nokkur maður eða kona haft yfir Steingrími Jóhanni Sigfússyni, þeim harðfylgna og rökfasta manni?  Hvaða vald dugði til að snúa honum gjörsamlega á hvolf???  Hvernig gat einn aumur flokkur, með 29% fylgi og enga sjáanlega mannlega hugsjón, snúið honum þvert gegn hans fyrri vilja í öllum stærstu málunum?  


NOKKRAR ÁHERSLUR VG, SEM SAMÞYKKTAR VORU Á LANDSFUNDI Í MARS, 09:

Stöndum vörð um hagsmuni Íslands í Icesave-málinu og lágmörkum skuldir þjóðarinnar af þeim sökum með öllum tiltækum ráðum:

http://www.vg.is/stefna/malefni

 


ENDURTEKNINGAR:

STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON, STJÓRNAR-ANDSTÆÐINGUR:

OKTÓBER, 08:

Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, segir að það verði gerð uppreisn hér á landi verði gengið að kröfum Breta og Hollendinga um að Íslendingar greiði 600 milljarða króna vegna Icesave-reikninganna:

http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item233100/



OKTÓBER, 08:

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna segist hafa heyrt þann orðróm að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hafi sett sem skilyrði að mál vegna Icesave reikninga Landsbankans yrðu gerð upp að fullu við Breta og Hollendinga.
Steingrímur segir að ef það sé rétt að þetta tvennt hangi saman sé það hrein fjárkúgun. Ekki liggi fyrir að okkur sé lagalega skylt að gera það og þetta bendi til þess að verstu martraðir séu að rætast varðandi aðkomu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins:

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/22/likir_bretalani_vid_fjarkugun/


JANÚAR, 09:

Framan af höfðu ýmsir ráðherrar ríkisstjórnarinnar uppi stór orð um að ekki kæmi til greina að Íslendingar létu kúga sig til uppgjafar í deilunni um hina lagalegu og þjóðréttarlegu ábyrgð landsins gagnvart Icesave-reikningunum. Eins og lögfræðingar hafa bent á var hlutverk innlánatryggingarkerfa samkvæmt reglum ESB/EES-svæðisins aldrei að takast á við allsherjar bankahrun, heldur aðeins fall einstakra banka.


Eins og undirritaður lýsti yfir við atkvæðagreiðslu um málið í þinginu 5. desember síðastliðinn lítur þingflokkur Vinstri grænna á samninginn sem riftanlegan eða ógildanlegan nauðungarsamning.
Enn er hægt að afstýra stórslysi fyrir íslenska þjóð. Taki Tryggingarsjóðurinn hins vegar við skuldunum er ljóst að þá verður ekki aftur snúið: Þá hefur þjóðin endanlega verið skuldsett á grundvelli pólitískra þvingunarskilmála sem ríkisstjórnin hafði ekki dug í sér til að standa gegn:

http://www.amx.is/adgerd.php?adgerd=pdf&id=7628


Hvað kom fyrir hann Steingrím???   EKKI ÞÓ ÞETTA?:

Náist ekki samstaða um lyktir Icesave-málsins innan ríkisstjórnarflokkanna í vikunni er ríkisstjórnarsamstarfinu sjálfhætt.  Þetta er mat Jóhönnu Sigurðardóttur, sem hefur misst alla þolinmæði vegna málsins:

http://www.visir.is/article/20090930/FRETTIR01/990584744/1031

 

http://img.visir.is/apps/pbcsi.dll/bilde?Site=XZ&Date=20090930&Category=FRETTIR01&ArtNo=990584744&Ref=AR&Profile=1031&NoBorder

 

Ekki minnist ég þess að hafa nokkru sinni haft svona mikið vald yfir manni, -þó ég sé nú dugleg.


 

ÉG ER AÐ ENDURTAKA ÝMISTLEGT ÚR FYRRI PISTLI MÍNUM: STEINGRÍMUR STJÓRNARANDSTÆÐINGUR, EN ÞAÐ SAKAR VÍST EKKI.  VIL LÍKA BENDA Á EFTIRFARANDI PISTLA:

 
 
 
 
 
 

 


AGS STÝRIR RÍKISSTJÓRNINNI

Franek Rozwadowski og Mark Flanagan frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.<br /><em>mbl.is/RAX</em> Franek Rozwadowski, Mark Flanagan, AGS (IMF).

Í yfirlýsingu stjórnvalda vegna samkomulags við AGS kom fram að fari erlendar skuldir upp í 240 prósent geti landið ekki staðið undir skuldabyrði sinni. Samkvæmt upplýsingum sem Seðlabankinn sendi frá sér í september sl. munaði aðeins nokkrum prósentustigum að Ísland kæmist yfir þau mörk.

http://www.visir.is/article/20090908/FRETTIR01/226509846/1064

 

 

Í nóvember 2008 mat AGS að 240% skuldahlutfall væri „augljóslega óviðráðanlegt“ (clearly unsustainable).  Ári síðar telur sjóðurinn að 310% hlutfall sé viðráðanlegt.  Þessi mótsögn í mati sjóðsins er athyglisverð í ljósi þess að íslenska ríkið gæti ekki ábyrgst lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu ef skuldaþolsmörkin frá því í nóvember 2008 héldu og væru enn 240%.  Það er ekki hægt að útskýra þessa stefnubreytingu AGS nema með þeim hætti að Bretar og Hollendingar hafi beitt pólitískum þrýstingi í stjórn AGS til að tryggja að íslenska ríkið taki á sig Icesave-skuldbindingarnar.

Alþingi, 15. nóv. 2009.

Lilja Mósesdóttir,
Ögmundur Jónasson.
 
 
 
Og Icesave-stjórnin ætlar samt að gangast undir Icesave.  Og gera ríkið gjaldþrota.

EFTIR NEITUN FORSETANS

EFTIR NEITUN FORSETANS

 

 


January 5, 2010    

 

 

Eftir neitun forsetans vissum við vel að núna færi áróður okkar tryggu ríkisstjórnar gegn okkur að herðast og rangfærslurnar um Icesave kæmu úr hverju skúmaskoti.  Núna hafa líka eitur-pennar og raddir Jóhönnu Sigurðardóttur farið um sem nornir á kústum um heiminn, með nótur frá Jóhönnu í vasanum.  Og Jóhanna og Steingrímur J. eru enn á fullu með sinn gamla hræðsluáróður um drauga í gömlum kjallörum og leynihellum.  Steingrímur lýsti yfir í Morgunblaðinu í gær að dómstólaleiðin væri varhugaverð.  Og af hverju skyldi það nú vera?:

DÓMSTÓLALEIÐIN VARHUGAVERÐ

Er Steingrímur að ljúga???? 

 

Eiríkur Bergman er einn stærsti leigu-penni og rödd Jóhönnu og co., og Evrópuríkisins, sem hann hefur lengi lofað í fjölmiðlum við hvert tækifæri.  Núna síðastliðið mánudagskvöld fór hann í útvarp ríkisstjórnarinnar, í Spegilinn, og rakkaði niður forsetann fyrir neitunina hans þegar hann bjargaði þjóðinni frá tortímingu.  Og skömm Eiríks er mikil:

Eiríkur Bergmann Einarsson ræðst á þjóðnýt afskipti Ólafs Ragnars Grímssonar af Icesave-málinu


Ómar Valdimarsson blaðamaður er líka dyggur eitur-penni Jóhönnu og co., en Ómar hefur skrifað fjölda rangfærslna á erlendum vettvangi um upplogna Icesave-skuld okkar.  Ætlun Icesave-stjórnarinnar er að pína Icesave í gegnum Alþingi eina ferðina enn og hafa af okkur kosninguna í mars með öllum ráðum.  Við vissum það, þó við getum ekki skilið hvað vakir fyrir slíkum óargardýrum gegn íbúum þessa lands: 

Lygar Ómars Valdimarssonar, News Scotsman

Lygar Ómars Valdimarssonar, Reuters

Lygar Ómars Valdimarssonar, Sify

 

 Eins og þið nú vitið, skrifaði Þórólfur Matthíasson, eitur-penni Jóhönnu Sig., níð um okkur Icesave-andstæðinga í Aftenposten í gær og gerði 500 - 1000 MILLJARÐA Icesave-nauðungina að engu merkilegra máli en grænum, gömlum 5 eyringi.  Eins grátlegt og ótrúlegt og það er, er maðurinn Íslendingur og býr sjálfur í landinu.  Skrif Þórólfs í Aftenposten eru með því ómerkilegasta sem nokkur maður getur skrifað um blásaklausan almúga landsins.  Hann er dyggur þjónn Jóhönnu og co. við að sparka í liggjandi menn. 

Við, íslenskur almenningur og íslenska rikið, berum ekki nokkra ábyrgð, hvorki lagalega né öðruvísi, fyrir Icesave-skuldum Landsbankans.  Næg rök hafa verið færð fyrir þessu af færustu lagaprófessorum.  Hagfræðingarnir Þorvaldur Gylfason og Þórólfur Matthíasson hafa löngum farið mikinn fyrir Icesave-stjórnina í innlendum fjölmiðlum í hættulegum Icesave-áróðri þeirra.  Þorvaldur Gylfason fær að skrifa fasta Icesave-pistla í Fréttablað eins stærsta glæframanns landsins, sem fjárstutt hefur Jóhönnu-flokkinn, og leyfðist líka að láta það út úr sér í RUV, ÚTVARPI OKKAR LANDSMANNA, og sem við borgum nauðungarskatt fyrir, að það væri HOLLT FYRIR OKKUR að borga Icesave.   Þórólfur Matthíasson hefur komið með ´rök´ fyrir Icesave ´skuld´okkar með lýsingum á sökkvandi skipi.  ´Rökin´ hans um sökkvandi skipið halda ekki sjó.  Ísland er ekki neitt sökkvandi skip í neinum sjó.

Ögmundar Jónasson tók nokkuð hart á þessum skrifum Þórólfs með nýjum pistli í síðunni sinni strax sl. nótt eða í morgun.  Þar útskýrir hann líka hófstillingu sína í Morgunblaðinu í gær: GEGN HAGSMUNUM ÍSLANDS 

 

Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra.<br /><em>mbl.is/Eggert</em>  Ögmundur Jónasson

Pistill Ögmundar:

NÍÐSKRIF Í NOREGI

Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, hefur ritað grein í norska stórblaðið Aftenposten. Þessi grein er með þvílíkum ólíkindum að manni verður orða vant. Ekki er nóg með að hann tali málstað Íslands í Icesave deilunni niður. Hann jafnar  okkur sem erum á öndverðum meiði við hann sjálfan við bandaríska fjárglæfraloddarann Madoff, sem dæmdur var til fangelsisvistar í 150 ár fyrir fjármálasvindl!

 

Níð Þórólfs Matthíassonar um blásaklaust fólk og niðurtal hans um Icesave, eru mun verri en með ólíkindum, beinlínis hrottaleg.  Hann gerir blásaklausan almenning landsins sekan úti í heimi, að úthugsuðu og yfirveguðu ráði.  Getum við ekki verið nokkuð viss um að þarna fari penni Jóhönnu og hennar skammarlega flokks?  Icesave framganga stjórnarflokkanna í heild sinni, að undanskildum Ögmundi Jónassyni og Lilju Mósesdóttur, hefur verið valdníðsla ein gegn almenningi í landinu.  Guð hjálpi okkur bara að hafa leppa erlendra handrukkara við völd. 

Lygar Þórólfs Matthíassonar; Aftenposten

Lygar Þórólfs Matthíassonar, Morgunblaðið

 

 


VAKNIÐ ÚR DÁINU

VAKNIÐ ÚR DÁINU

 

http://brahim.blog.is/users/3e/brahim/img/johanna_882645.jpg

VALDNÍÐINGUR - ORÐ FANNST Í ORÐABÓK -_- 

 

Ætlar Icesave-kommúnista-stjórnin ekki að fara að vakna úr Icesave-dáinu og alfarið hafna ólögmætu Icesave rukkununum?  Rukkunum manna sem hafa fengið orð fyrir að vera hluti af stærri mafíu.  Mafíu sem gerir efnahagsárásir á lönd.  Stór hópur landsmanna hefur barist gegn ólögmætu Icesave ruglinu frá degi 1 og mál að þessi afvegaleidda og kolruglaða stjórn fari að skilja hvað snýr niður og hvað snýr upp.  Maður semur ekki við mannvonsku.  Maður semur ekki við hryðjuverkamenn og mafíu.  Maður gerir það bara ekki.  Það er logandi vitfirra og það þarf engan heilaskurðlækni eða Nóbels-vísindamann til að skilja það.  En að sjálfsögðu getum við ekki ætlast til að vitfirrt stjórn viti muninn á lögum og lögleysu, réttu og röngu, það er víst til of mikils ætlast. 
HVAÐ ERU ÞAU ÞÁ AÐ GERA ÞARNA??? 

 

Jóhanna Sig. er að valda okkur alltof miklum skaða og verður að víkja úr ríkisstjórn. Núna strax.  Konan er óhæf og vanhæf og stórhættuleg.  Konan er mesti skaðvaldur landsins.  Við getum ekki lifað lengur undir hæl þessa Evrópu-sýkta valdníðings, sem mun gefa landið okkar og lög þess og skatttekjur ríkisins til mafíu-stjórna í Evrópu til að fá að vera í þeirra náð.  Við viljum ekki þeirra náð, við viljum ekki þeirra rukkanir, við viljum ekki þeirra yfirráð.  Við ætlum EKKI að vera skuldaþrælar þeirra.
GETA NÍÐINGAR EKKI BARA FLUTTT ÚR LANDI? 

 

Mikil er ykkar firra að halda að við sættum okkur við mafíuskuldir eins og það væri bara eðlilegur hlutur.  Og fyrir utan það má ríkið ekki standa undir tapi neinna fyrirtækja nema ríkisfyrirtækja.  Evrópulögin segja það og íslensku lögin segja það.  Ríkið má ekki semja framhjá neinum lögum frekar en við hin.  Og skiptir engu hvað Jóhönnu Sig. langar mikið inn í Evrópu og kemur okkur hinum bara ekki neitt við.  Það er engin ríkisábyrgð á Icesave samkvæmt neinum lögum.  Ríkisstjórnin getur ekki samið um Icesave og forsetinn getur ekki skrifað undir nein Icesave-lög.  Ekki 2. september, ekki 31. desember, aldrei.
VAKNIÐ ÚR DÁINU. ÞAÐ ER BANNAÐ AÐ SEMJA FRAMHJÁ LÖGUM.

 


ENGIN RÍKISÁBYRGÐ: ALAIN LIPIETZ + EVA JOLY

ENGIN RÍKISÁBYRGÐ: MICHAEL HUDSON

HALDIÐ RÓ YKKAR: EVA JOLY

INNHEIMTU-MAFÍAN 1: MAX KEISER

INNHEIMTU-MAFÍAN 2: MAX KEISER

 

MÉR FANNST ÉG YRÐI BARA AÐ NOTA ÞAU STÓRU ORÐ SEM MÉR DATT Í HUG ÞARNA, ÞVÍ NÚ ER LÖNGU KOMIÐ NÓG AF ICESAVE LÖGLEYSUNNI GEGN OKKUR.

  


STÝRIR HANN ÍSLANDI?

STÝRIR HANN ÍSLANDI?

Dominique Strauss-Kahn var spurður út í Icesave og stöðu Íslands.<br /><em>TIM CHONG</em>Strauss-Kahn, the IMF 

 

EÐA STÝRIR HANN ÍSLANDI? 

Jóhanna Sigurðardóttir ræddi við Gordon Brown í dag.<br /><em>Reuters</em>

Mr. Icesave

Hver gaf þessum manni leyfi til að rukka okkur um peninga sem við höfum aldrei skuldað honum?  Hann flaug yfir lönd og höf alla leið til AGS með hollenska meðbróður sínum í glæpnum.  Og í grafarþögn og fyrir luktum dyrum misbeittu þeir ólöglegu neitunarvaldi í hinum svokallaða Alþjóða-banka og gerðu stjóra sjóðsins að vitorðsmanni í glæp þeirra. 

Og þeir notuðu veikleika Jóhönnu skúringarkonu - en ég heyrði í einni útvarpsstöðinni nýlega að Jóhanna væri víst að fara að vinna við skúringar af því hún væri gjörsamlega glötuð við landstjórn.  Og veikleikann þekkja allir sem hafa nokkru sinni heyrt Jóhönnu getið.  Ef þið skylduð vera farin að ryðga - þá er fyrsti stafurinn E. 

Og gáfuð þið, mínir kæru landar, Jóhönnu leyfi til að skrifa út um allan heim á útlensku að við skulduðum Jan og Godda 1000 milljarða???  Þúsund x þúsund milljónir???  Ef ekki, hvað gefur henni leyfi til að fara með svona niðurlægjandi bull um okkur bæði heima og í öðrum löndum?  Í RUV og öllum hinum ríkisstjórnarmiðlunum.  Í Canada Post og EU-Observer og Jylland Posten og New York Times og Reuters.  Nefndu bara eitthvað fréttablað og Jóhanna er mætt.

Og hvað gaf hinum svokallaða blaðamanni, Ómari nokkrum skáld, leyfi til að skrifa lygasögu um okkur og gera söguna að heimsfrétt í öllum heimsálfum?  Hvar sem maður lítur er hann mættur með stórfrétt um platskuld okkar upp á 5.7 milljarða dollara.  Hann hefur stórskaðað okkar málstað og vegið að okkar æru.  Og vegna bulls hins svokallaða fréttamanns hafa nokkur okkar lamið höfðinu utan í veggi við að elta og eyða rangfærslunum.  Vakað daga og nætur við að skrifa þangað til við erum orðin blá í framan og blóðþrýstingurinn kominn upp úr öllu valdi af reiði.  Því fyrr munum við sko dauð liggja en borga skuldina hennar Jóhönnu. 

 

SKÁLDIÐ:

 

http://www.reuters.com/article/idUSTRE60N1BZ20100124

http://news.scotsman.com/world/Iceland-seeks-debt-mediator.6009676.jp#0

 


 
SKÚRINGARKONAN:
 
Icelandic Prime Minister Johanna Sigurdardottir said Friday she is pressing Britain and the Netherlands to renegotiate payment of $5.7 billion OWED for lost bank deposits: HVAÐ SKULDUM VIÐ, JÓHANNA???
 

[Comment] Iceland is fully committed to honouring its obligations:
HVAÐA SKULDBINDINGAR, JÓHANNA???
 

http://euobserver.com/9/29265

 

Ég varð að bæta þessu inn frá CNN um forseta Íslands því það kom svo ótrúlega tímanlega eftir að ég var búin að ljúka við pistilinn. Forsetinn hefur mína virðingu fyrir að koma fram opinberlega í erlendum fjölmiðlum og blátt áfram taka á yfirganginum gegn okkur og verja okkur.  Icesave-liðið vill örugglega að hann þagni: Hann gæti bjargað okkur þrælunum frá ólöglegri kúgun þeirra.  Hann hefði getað verið harðari um lagalega stöðu okkar þó.  Það er ekki almennt vilji landsmanna að við tökum á okkur neinn hluta Icesave, ekki heldur það sem hann skrifaði undir 2. september. 


Iceland president: We are being bullied:
January 29, 2010


http://edition.cnn.com/2010/BUSINESS/01/29/iceland.uk.grimsson.davos/index.html#disqus_thread

 

 

Og ég vil taka það fram að fólk hefur skrifað nokkrum fjölmiðlum og kvartað yfir rangfærslum Ómars blaðamanns.  Hættan er of mikil þegar hann skrifar villur í stórar heimsfréttaveitur eins og the Associated Press eða Reuters og það fer þaðan í tonnavís um allan heim.  Það þarf að stoppa rangfærslurnar strax þar.  Vil líka upplýsa að Reuters virðist hafa brugðist fljótt við með UPDATE og engin orð eru þar um SKULD okkar.  Og Ómar blaðamaður hefur ekki fengið að skrifa þarna:

UPDATE REUTERS:

http://www.reuters.com/article/idUSLDE60K08M20100121

 

 

Ég þurfti að laga orðalagið mitt, billjón, í pistlinum, þar sem ég hafði haldið að billjón væri það sama á íslensku og milljarður, þar til ég las þennan pistil Jóns: http://jonvalurjensson.blog.is/blog/jonvalurjensson/entry/1012719/


ER MUNUR Á KOMMÚNISMA, MARXISMA OG NASISMA?


Mother & Child HELFÖRIN Í ÚKRAÍNU UNDIR STJÓRN KOMMÚNISMA STALÍNS: MORÐ MEÐ SVELTI.  HÖNNUÐU STJÓRNVÖLD HUNGURMORÐ Í ÚKRAÍNU?  FYRIRFRAM SKIPULÖGÐ FJÖLDAMORÐ 7 - 10 MILLJÓNA SAKLAUSRA MANNA?

EINVALDURINN OG KOMMÚNISTINN MAÓ VAR ÁBYRGUR FYRIR DAUÐA 70 MILLJÓN MANNS.

 

 

 

 

 

Föstudaginn síðasta, 22. janúar, hlustaði ég á fréttaskýringarþátt (documentary) um kommúnisma, marxisma og nasisma í bandarísku fréttastöðinni, FOX NEWS Channel.  Og það var hrikalegt á að hlusta. Að neðanverðu er allur þátturinn í heild sinni. Þar fer Glenn Beck með okkur aftur í tímann og rannsakar rætur kommúnisma og sósíalisma og það illa sem fylgdi. Við þekkjum öll hrylling helfararinnar þar sem djöfulleg öfl af völdum Hitlers tóku líf milljóna saklausra manna. En fæstir vita um dauða milljóna manna á milljónir ofan í annarri helför, í Úkraínu undir harðstjórn Stalíns. Mao var ábyrgur fyrir dauða 70 milljón manna. Hver er munurinn á kommúnisma, marxisma, nasisma og sósíalisma?

Farið er yfir sögu Castro, Che, Engels, Hitler, Lenín, Mao, Marx og Stalín. Þeir voru allir á móti kapítalisma.  Voru þeir allir kommúnistar?




HORRORS OF THE HOLOCAUST TOOK THE LIVES OF 6 MILLION PEOPLE.

THE GENOCIDE OF THE UKRAINIAN PEOPLE: MURDER BY HUNGER.  THE GOVERNMENT DESIGNED STARVATION IN THE UKRAINE, PREMEDITATED MASS MURDER ON A MASSIVE SCALE, TOOK THE LIVES OF 7 - 10 MILLION PEOPLE.

ENGELS, ONE OF THE FOUNDERS OF COMMUNISM, WAS AN ADVOCATE OF ETHNIC CLEANSING. 

70 MILLION PEOPLE DIED UNDER MAO´S COMMUNIST RULE.  MAO WAS THE GREATEST MASS MURDERER IN THE 20TH CENTURY. 

THE NAZIS AND THE SOVIET COMMUNISTS WORKED TOGETHER AND INVADED POLAND FROM THE OPPOSITE SITES.

 
The Introduction:

http://www.youtube.com/watch?v=WQFEdOS0Hwg&feature=related

The Documentary:

http://www.youtube.com/watch?v=SKWOtYN-4NE


The Documentary:


1 OF 5:

http://www.youtube.com/watch?v=cNrfY4U9WYM&NR=1
 
2 OF 5:

http://www.youtube.com/watch?v=rw7DtjO4V6c

3 OF 5:

http://www.youtube.com/watch?v=H8XLKNUJzMQ

4 OF 5

http://www.youtube.com/watch?v=i2N7qDn0-PI

5 OF 5:

http://www.youtube.com/watch?v=HzWLkzcnwp4



« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband